Varanleg Förðun Reykjavík
Varanleg Förðun Reykjavík
Heim Um Okkur Myndasafn Bókanir
Bóka Tíma
Varanleg förðun Reykjavík

Fagleg og nákvæm meðferð í notalegu umhverfi

Við trúum því að fegurð felist í smáatriðunum. Með áherslu á faglega tækni, ítrustu hreinlætiskröfur og listræna nákvæmni, mótum við meðferðir sem undirstrika þína náttúrulegu fegurð á fágaðan hátt.

Fagleg og nákvæm meðferð í notalegu umhverfi

Meðferðir okkar

1 /

Augabrúnaflúr

Varanleg förðun á augabrúnum hentar vel þeim sem vilja fá jafnara og fallegra form á augabrúnirnar eða fylla upp í þar sem hár vantar. Þetta getur til dæmis hentað þeim sem eru með gisnar eða mjög ljósar augabrúnir eða vilja einfaldlega losna við að þurfa að fylla þær inn á hverjum degi. Við byrjum alltaf á að teikna upp formið og velja lit í samráði við viðskiptavin. Ekkert er byrjað fyrr en við erum báðar ánægðar með lögunina. Hægt er að gera augabrúnirnar mjög náttúrulegar eða aðeins meira áberandi, allt eftir því hvað hver og einn vill. Við tökum alltaf mið af andlitsfalli, eigin hárum og húðlit.

2 /

Augnlína

Varanleg augnlína er góður kostur fyrir þær sem vilja skerpa á augunum án þess að þurfa að teikna augnlínu á hverjum morgni. Hægt er að hafa línuna mjög fíngerða, til dæmis aðeins meðfram augnháralínunni, eða gera hana aðeins breiðari og meira áberandi. Við ákveðum þykkt og lögun áður en meðferð hefst og miðum við það sem passar við augun og óskir viðskiptavinarins. Augnlínan dofnar smám saman með tímanum og því getur þurft að fríska upp á litinn síðar.

3 /

Varalitun

Varanleg förðun á vörum er notuð til að skerpa á útlínum varanna, jafna lit og gefa vörunum fallegri heildarsvip. Meðferðin er ekki hugsuð til þess að breyta lögun varanna mikið heldur frekar til þess að vinna með það sem fyrir er. Hægt er að velja mjög náttúrulegan lit eða aðeins sterkari lit eftir óskum. Strax eftir meðferð er liturinn töluvert sterkari en endanleg útkoma. Þegar varirnar hafa gróið verður liturinn mýkri og náttúrulegri.

Notalegt umhverfi

Notalegt umhverfi

Stofan okkar er staðsett í kyrrlátu og fallegu umhverfi í Dugguvogi 15. Við leggjum ríka áherslu á að bjóða upp á róandi andrúmsloft þar sem þér líður vel á meðan fyllstu fagmennsku er gætt í hverju handtaki.

location_on
Staðsetning

Dugguvogur 15, Reykjavík

call